María Ellingsen

Arctic Women

Arctic Women er nýtt verk sem María og norska leikkonan Juni Dahr vinna nú að og fjallar um fund manneskjunnar við náttúruna.

Fyrsta útgáfa þess er byggð á dagbókum kvenna sem dvalið hafa á Svalbarða í lengri eða skemmri tíma en aðrar sögur kvenna á Norðurslóðum munu síðan verða hluti af verkinu í næstu útgáfum.

Frumsýning verður í gamalli kolajárnbrautastöð sem stendur á stultum í Longyearbyen haustið 2019.

María og Juni ásamt Reijo Kela tilraunadansara frá Finnlandi og Snorra Frey Hilmarssyni dvöldu fyrst á Kolstöðum við smíðar á þessu verki. En þau þrjú fyrstnefndu héldu svo til Svalbarða til rannsóknarstarfa.

Deila frétt