María Ellingsen

Enginn hittir einhvern

Enginn hittir einhvern, er kraftmikið, innblásið og afgerandi leikrit. Peter Asmussen er listamaður tungumálsins og heldur með okkur í dásamlegt og hættulegt ferðalag um furður lífsins. Asmussen setur fram sextán stuttar senur sem eru allt í senn fyndnar, ljóðrænar og ofbeldisfullar og kannar samband karls og konu. Asmussen notar tungumálið sem eins konar skurðhníf og kryfur afar flóknar og mikilvægar tilvistarspurningar.

“Þessi sýning á fundi karls og konu er ákaflega vel uppbyggð, líkamarnir tala í áreynslulausu hreyfingamunstri. Það er mýkt yfir allri nákvæmni leiksins… okkar hlutverk er jafn mikilvægt og leikaranna góðu… ég fer heim með ýmsa nýja fleti á tilverunni sem ég hef kannski áður veigrað mér við að hugsa um. Norræna sýningin á Enginn hittir einhvern er ljós í myrkri.” – María Kristjánsdóttir, RÚV.

Fjórar stjörnur – “Textinn virkar eins og tónverk með ólíkum leiðarstefjum. Nálgun Simons Boberg leikstjóra undirstrikar músíkina í verkinu. Leikurinn og allar hreyfingar eru stílfærðar og minna þannig á dansverk þar sem hver einasta handahreyfing og augnaráð er fyrirfram ákveðið. Leikurinn er agaður og undirstrikar kuldann sem af textanum stafar en undir niðri kraumar hiti, örvænting og þrá eftir tengslum sem hreyfði sterklega við rýni. “ – Silja Björk Huldudóttir, Morgunblaðið.

Höfundur: Peter Asmussen.
Leikhús: Norræna Húsið / Black Box.
Leikstjóri: Simon Boberg.
Leikarar: María Ellingsen og Björn Ingi Hilmarsson.
Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson.
Danshöfundur: Raisa Foster.
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Tónlist: Andreas Ljones.
Framleiðendur: Annað Svið og Norræna Húsið.

Deila