María Ellingsen

Ísalög

Ísalög

Sænsk-íslensk spennuþáttaröð um sænskan ráðherra sem leggur til að olíuborun verði bönnuð á norðurheimskautssvæðinu. Þegar Norðurskautsráðið hittist á Grænlandi til að undirrita sáttmála þess efnis er ráðist á sænskt skip í nágrenninu og áhöfninni rænt. Árásin reynist vera fyrsti hluti vel skipulagðrar aðgerðar sem ætlað er að koma í veg fyrir undirritun sáttmálans. 

Þættirnir eru að mestu teknir upp á Íslandi og María lék utanríkisráðherra Íslands í Norðurskautsráðinu. Í leikarhópnum voru margar norrænar stjörnur svo sem: Lena Endre, Bianca Kronlöf, Alexander Karim, Johannes Kuhnke, Angunnguaq Larsen, Nukâka, Nicolas Bro, Hauk Heyerdahl, Kristofer Gummerus, Marina Bouras, Johannes Kuhnke og Reine Brynolfsson

Leikstjóri: Cecilie A. Mosli

Handritshöfundar: Birkir Blær Ingólfsson, Jónas Margeir Ingólfsson og Jóhann Ævar Grímsson.

 

Deila